NÝTT VERK Í SAFNEIGN

10.2.2021

Listasafn Íslands kynnir nýtt verk í safneign:

Kristinn E. Hrafnsson (f. 1960)Dægursveifla, 2020Keypt 2020LÍ-11544

Heiti verksins er sótt í fyrirbærið sjálft, dægursveiflu. Dægursveifla er á sama tímanum stöðugt ástand og breytilegt – stöðugt í þeim skilningi að allt er á stöðugri hreyfingu og breytilegt í þeim skilningi að endurtekningin er ekki möguleiki. Allt er undir áhrifavaldi einhvers annars; jörðin er undir áhrifavaldi annarra himintungla og lífið er háð þeim sveiflum sem kraftar þeirra valda. 

Fjársjóður íslenskrar myndlistar

Safnið er opið alla daga frá 10 - 17