Opið verður frá kl. 18 til 23 í öllum söfnum. Verið velkomin! Listasafn Íslands, Fríkirkjuvegi 7
Kl. 20.00 leiðsögn um sýninguna Valtýr Pétursson. Dagný Heiðdal, sýningarstjóri og deildarstjóri listaverkardeildar, leiðir gesti um sýninguna. Tilvalið tækifæri til að kynnast þessum áhrifamikla listamanni. NÁNAR
Kl. 20.45 Listamaðurinn Ina Otzko verður með kynningu á verkum sínum fyrir framanVasulka-stofu. NÁNAR
Kl. 21.15 Næturljóð að kvöldi. Hvíld við kvöldtóna. Flytjendur munu bjóða gestum og gangandi upp á íslenskar vögguvísur í bland við erlend kvöldljóð í safninu.NÁNAR
Listasafn Sigurjóns Ólafssonar, Laugarnestanga 70Kl. 20:30 og kl. 21.30 Tónleikar Dúó Landon. Á gömlum merg. Dúó Landon leikur tónlist þriggja alda í Listasafni Sigurjóns á safnanótt. Elstu verkin eru frá 17. öld, en það yngsta frá liðnu ári.Safnanætur-strætó, leið C ekur að Listasafni Sigurjóns Ólafssonar. NÁNAR
Safn Ásgríms Jónssonar, Bergstaðastræti 74Kl. 19:00-23:00 Kveikjan og frásögnin - Eldgosamyndir Ásgríms Jónssonar. Rakel Pétursdóttir sýningarstjóri sýningarinnar Ógnvekjandi náttúra ræðir við gesti um tilurð og kveikjur eldgosamynda Ásgríms Jónssonar. Heitt á könnunni.NÁNAR