Saman inn í skólaárið með Listasafni Íslands

20.8.2024

Við þökkum fyrir frábærar mótttökur kennara sem mættu á haustfund safnsins í gær í Safnahúsinu við Hverfisgötu.

Þar voru fræðsluleiðir kynntar fyrir komandi skólaár ásamt viðburðum kennaraklúbbsins á önninni. Safnið hefur á síðustu misserum byggt upp kærkomið samfélag og samtal við kennara sem er okkur mikilvægt. Á fundinum var kynning á Sjónarafli – þjálfun í myndlæsi sem er nýtt námsefni úr smiðju listasafnsins ásamt yfirstandandi sýningum safnsins. Þá var sérstök kynning á verkefninu Ísabrot – jöklar í íslenskri myndlist og verkefninu „Stattu og vertu að steini“ þjóðsögurnar okkar.

Nánari upplýsingar um fræðsluleiðir safnsins og bókunarkerfi fyrir skólahópa má finna á heimasíðunni.

Við hlökkum til þess að fara saman inn í skólaárið og miðla myndlist og menningararfi þjóðarinnar til komandi kynslóða.

Fjársjóður íslenskrar myndlistar

Listasafnið við Tjörnina, Safnahúsið og Listasafn Einars Jónssonar eru opin alla daga 10–17