Safnafræði
Háskóla Íslands og höfuðsöfnin þrjú – Listasafn Íslands, Náttúruminjasafn Íslands og Þjóðminjasafnið vinna saman að því að styðja sérstaklega við safnfræðslu með mögulegri útgáfu á praktísku efni fyrir safnkennara. Fyrstu skrefin í þeirri vinnu er spurningkönnun sem háskólanemarnir Regína Másdóttir og Harpa Rut Hilmarsdóttir munu vinna og senda öllum söfnum, setrum og sýningum á landinu þar sem spurt er um stöðu og þarfir vegna safnfræðslu. Sú vinna og úrvinnsla er styrkt sumarvinna af Nýsköpunarsjóði námsmanna. Það er gott að finna fyrir jákvæðninni sem fylgir þessu samstarfi sem vonandi skilar svo góðu og vönduðu, praktísku efni sem nýtist öllum safnkennurum.

Guðrún Dröfn Whitehead frá Safnafræði Háskóla Íslands, Helga Aradóttir frá Náttúrminjasafni Íslands, Jóhanna Bergmann frá Þjóminjasafni Íslands, Ingibjörg Hannesdóttir og Ragnheiður Vignisdóttir frá Listasafni Íslands, háskólanemarnir Harpa Rut Hilmarsdóttir og Regína Másdóttir.