Þriðjudaginn, 10.02.2026 og miðvikuidaginn, 11.02.2026 fara fram skólatónleikarnir Stattu og vertu að steini með Sinfóníuhljómsveit Íslands. Tónleikarnir eru samstarfsverkefni hljómsveitarinnar og Listasafns Íslands þar sem listaverk úr eigu safnsins eru myndefni tónleikanna, og fléttast inn í líflega frásögn sögumannsins Ólafs Egilssonar sem rígheldur athygli ungra áhorfenda. Þúsundir barna fá boð á tónleikana ásamt því að streymi fer fram til skóla á landsbyggðinni.
Samhliða tónleikunum opnar samnefnd sýning í Safnahúsinu við Hverfisgötu þar sem kennarar geta bókað leiðsögn og fræðst nánar um þjóðsögur í íslenskri myndlist. Fræðslustarfið heldur áfram með útgáfu fræðsluefnis fyrir kennara um þjóðsögurnar í veglegri bók, sem verður sú þriðja í fræðslubókaröð safnsins. Útgáfuhóf verður þann 26. febrúar kl. 15.
Samlegðaráhrif Sinfóníuhljómsveitar Íslands og Listasafns Íslands í fræðslustarfi eru mikil þar sem gæðin í framsetningu menningarefnis fyrir börn eru ótvíræð. Takk fyrir ánægjulegt samstarf!
Á morgun, miðvikudaginn 11. febrúar, verður tónleikunum streymt í beinni til nemenda um allt land – Streymið hefst kl. 11 og verður aðgengilegt á sinfonia.is
Stattu og vertu að steini! Skólatónleikar í Eldborg


