Listasafn Íslands hlýtur styrk úr Sprotasjóði 

27.3.2026

Listasafn Íslands hlaut á dögunum rúmlega 4 milljóna króna styrk til þróunar í fræðslustarfi og áframhaldandi samstarfs við Íslenskudeildir Ingunnarskóla og Austurbæjarskóla í tengslum við sýninguna Stattu og vertu að steini! Þjóðsögur í myndlist. 

Verkefnið ber heitið Þar sem sögur mætast og byggir á vinnu síðustu missera þar sem safnið og skólarnir hafa unnið saman að þróun listasmiðja og miðlunar á safninu. 

Áhersla er lögð á miðlun á listaverkum þjóðarinnar þar sem markmiðið er að veita nýjum Íslendingum sem nema við íslenskudeildir aðgengi að listasafninu og þróa með kennurunum nýjar leiðir til tungumálanáms, listrænnar sköpunar og tjáningar þar sem safnið er nýtt sem námsvettvangur. 

Þjóðsögurnar voru valdar með það að leiðarljósi að í öllum löndum heims fyrirfinnast þjóðsagnir og ævintýri. Þannig myndast grundvöllur til þess að deila reynslu og ólíkum menningarheimum á jákvæðan hátt.

Sýningin Stattu og vertu að steini! í Safnahúsinu við Hverfisgötu styður við verkefnið ásamt samnefndri útgáfu sem skrifuð er fyrir kennara á öllum skólastigum sem eru að vinna með viðfangsefni þjóðsagnanna. Afrakstur verkefnisins mun nýtast til lengri tíma, börnum um allt land í gegnum öfluga miðlun og fræðslustarf Listasafns Íslands.

Hér má sjá myndir frá opnun myndlistarsýningar í Safnahúsinu á verkum nemenda íslenskudeilda Ingunnarskóla og Austurbæjarskóla sem unnið hafa með safninu síðustu mánuði í tengslum við þjóðsagnasýninguna. Nemendahópurinn samanstendur af börnum á aldrinum 10 - 16 ára, sem tala samtals 16 tungumál.

Við þökkum fyrir veittan styrk, samstarfið við kennara og nemendur skólanna og höldum áfram að miðla menningararfinum til komandi kynslóða í Listasafni Íslands.

Um leið hvetjum við kennara og áhugasama um að heimsækja sýninguna og kynna sér nýja námsefnið.

Sýningin er í lessal hússins og stendur yfir til og með 29. mars 2026. 

Fjársjóður íslenskrar myndlistar

Listasafnið við Tjörnina, Safnahúsið og Listasafn Einars Jónssonar eru opin alla daga 10–17