STATTU OG VERTU AÐ STEINI

13.12.2019

Þjóðsögustund í Safni Ásgríms Jónssonar.

Álfar, draugar og tröll lifna við í þjóðsögunum okkar! Komið og hlustið og þjóðsögurnar í gömlu vinnustofu listmálarans Ásgríms Jónssonar við Bergstaðastræti 74.

Krakkaklúbburinn Krummi stendur fyrir fjölbreyttri og skemmtilegri dagskrá í hverjum mánuði þar sem kátum krökkum er boðið að fræðast um listaverkin í safneign Listasafns Íslands, skapa listaverk og leika sér í nærandi umhverfi.Krakkaklúbburinn Krummi er fyrir börn á öllum aldri!Með stofnun krakkaklúbbsins vill Listasafn Íslands veita börnum og fjölskyldum þeirra tækifæri til þess að njóta góðra stunda saman á safninu. Dagskráin er vönduð og öllum er velkomið að taka þátt, sér að kostnaðarlausu. 

Fjársjóður íslenskrar myndlistar

Safnið er opið alla daga frá 10 - 17