Úthlutun úr Styrktarstjóði Guðmundu Andrésdóttur

23.5.2025

Föstudaginn 23.5.2025 var í þrettánda sinn veittur styrkur út styrktarstjóði Guðmundu Andrésdóttur. Úthlutunin fór fram í Listasafni Íslands við opnun nýrrar yfirlitssýningar á verkum Kristjáns H. Magnússonar, Endurlit. Í úthlutunarnefnd er fulltrúi úr innkaupanefnd og safnstjóri Listasafns Íslands. Í dag hafa 23 listamenn fengið styrki úr sjóðnum. Markmið sjóðsins er að styrkja listamenn til framhaldsnáms í myndlist. Eftirtaldir listamenn hlutu styrk að upphæð einni milljón hver.

Á. Birna Björnsdóttir lýkur mastersnámi  frá Institute Art Gender Nature í Basel í lok september en þar eru tekin til skoðunar stærstu áskoranir okkar tíma á skapandi og frjóan hátt. Birna hefur sýnt víða og var meðal annars valin í sýninguna After the sun – forcast from the north sem sett var upp í Bandaríkjunum og Danmörku og fjallaði um ótryggar framtíðarhorfur á tímum mikilla umbreytinga í náttúrunni. Birna hlaut hvatningarverðlaun Myndlistarmiðstöðvar árið 2023.

Geirþrúður Finnbogadóttir Hjörvar en hún hóf fjögura ára doktorsnám í myndlist við Luca listaháskólann í Brussel síðasta haust. Geirþrúður hefur haldið fjölda einkasýninga og vinnur að rannsóknartengdri myndlist þar sem hún horfir gagnrýnum augum á samfélag okkar. Sem vísbending um umfjöllunarefni Geirþrúðar eru nöfn á sýningum og verkum;  Vísitala (2023), Minnismerki um gengisfellingar á níunda áratugnum.  Ljómynd: Rut Sigurðardóttir

Sölvi Steinn Þórhallsson hóf á þessu ári mastersnám við UniArt í Helsinki en hann hefur sett upp fjölda einkasýninga og tekið þátt í samsýningum hér heima og í Evrópu. Í verkum sínum veltir Sölvi fyrir sér undrum hversdagslegra augnablika og hluta, tilgangi og tilgangsleysi þeirra og vinnur jöfnum höndum með ljósmyndir, innsettningar, skúlptúra, videó og innsetningar.

Fyrir hönd listamannanna tóku á móti styrkjunum:
Alexander Hugo Gunnarsson, vinur Sölva Steins Þórhallssonar, Aðalheiður Kristjánsdóttir, móðir Geirþrúðar Finnbogadóttur og Eik Baldursdóttir, frænka Á. Birnu Björnsdóttur

Fjársjóður íslenskrar myndlistar

Listasafnið við Tjörnina, Safnahúsið og Listasafn Einars Jónssonar eru opin alla daga 10–17