Tónleikar til heiðurs þessu ástsæla tónskáldi sjötugu. Flutt verður úrval einleiks- og einsöngsverka frá ýmsum tímum á ferli hans. Flytjendur eru söngkonurnar Herdís Anna Jónasdóttir og Þórunn Arna Kristjánsdóttir, Hlíf Sigurjónsdóttir fiðluleikari, Leon van Mil sem leikur á baritónsaxófón og píanóleikararnir Tinna Þorsteinsdóttir, Sólveig Anna Jónsdóttir og Anna Áslaug Ragnarsdóttir, en þau eru öll tengd Jónasi nánum fjölskyldu- eða vinaböndum.
Listasafn Sigurjóns Ólafssonar, þriðjudagskvöld 19. júlí kl. 20:30.Miðasala við innganginn. Aðgangseyrir kr. 2500.
nánari upplýsingar á heimasíðu Listasafns Sigurjóns Ólafssonar