SUNNUDAGSLEIÐSÖGN 15. MARS KL. 14

11.3.2015

Sunnudaginn 15. mars klukkan 14 mun Einar Garibaldi Eiríksson, myndlistarmaður, fylgja gestum Listasafns Íslands um sýningu A Kassen-hópsins í Listasafni Íslands.

Myndlistarmennirnir Einar Garibaldi og Davíð Örn Halldórsson voru valdir af dómnefnd til að taka þátt í hinum virtu myndlistarverðlaunum Carnegie Art Award árið 2014 og voru í hópi sautján norrænna listamanna sem valdir voru og áttu möguleika á að vinna ein stærstu listverðlaun heims. Listamannahópurinn A KASSEN vann til þriðju verðlauna Carnegie-fjárfestingabankans árið 2014 og styrk til handa yngri listamanni hlaut Davíð Örn.

Af fjárhagslegum ástæðum varð að hætta veitingu Carnegie-listverðlaunanna og hætta við sýningarferðina árið 2014, og þar með að hætta við að hafa hana í Den Frie-samtímalistasafninu í Kaupmannahöfn. Fyrir vikið myndaðist gat í sýningardagskrá Den Frie og þar á bæ ákváðu menn því að bjóða A Kassen að setja upp einkasýningu. Sýning þeirra er nú í Listasafni Íslands en þar er gengið á hólm við hefðbundna list um leið og skilningi okkar á hugtökum á borð við „list“, „hefð“ og „sýning“ er ranghverft.

Einar Garibaldi stundaði nám við Myndlista- og handíðaskóla Íslands og útskrifaðist frá Accademia di Belle Arti di Brera í Mílanó á Ítalíu árið 1991. Hann hefur haldið fjölda einkasýninga og tekið þátt í samsýningum ásamt því að vera sýningarstjóri og sinna kennslu um árabil. nánar um sýninguna

Fjársjóður íslenskrar myndlistar

Safnið er opið alla daga frá 10 - 17