SUNNUDAGSLEIÐSÖGN 17. janúar kl. 14

14.1.2016

Halldór Björn Runólfsson, safnstjóri Listasafns Íslands leiðir gesti um sýninguna  KVARTETT, Gauthier Hubert, Chantal Joffe,  Jockum Nordström, Tumi Magnússon.

Listasafn Íslands hefur sýningadagskrá sína á nýju ári með sýningu fjögurra samtímalistamanna, þeirra Gauthiers Hubert (1967), Chantal Joffe (1969), Jockums Nordström (1963) og Tuma Magnússonar (1957).Á sýningunni er maðurinn í brennidepli og framsetning verka listamannanna fjögurra snýst um listmiðilinn og sögu hans að fornu og nýju. Halldór Björn er sýningarstjóri sýningarinnar.

Fjársjóður íslenskrar myndlistar

Safnið er opið alla daga frá 10 - 17