SUNNUDAGSLEIÐSÖGN 3. JANÚAR: NÍNA TRYGGVADÓTTIR - LJÓÐVARP

29.12.2015

Dr. Ásdís Ólafsdóttir, listfræðingur og einn höfunda bókarinnar um Nínu Tryggvadóttur, leiðir gesti um sýninguna Nína Tryggvadóttir - Ljóðvarp.

Á sýningunni, Nína Tryggvadóttir - Ljóðvarp, er merkum listferli Nínu Tryggvadóttur (1913–1968) gerð góð skil með fjölda listaverka hennar og útgáfu. Verk Nínu Tryggvadóttur í safneign Listasafns Íslands eru 80 talsins, frá árabilinu 1938–1967, en auk valdra verka úr safneign verða sýnd lánsverk víða að, sem sjaldan eru sýnd, og valin verk í eigu Unu Dóru Copley, einkadóttur listamannsins, sem hafa mörg hver ekki áður verið sýnd á Íslandi. Athugið að sunnudagur 3. janúar er síðasti sýningardagur.

Fjársjóður íslenskrar myndlistar

Safnið er opið alla daga frá 10 - 17