SUNNUDAGSLEIÐSÖGN SAFNSTJÓRA LISTASAFNS ÍSLANDS – JÓHANNA KRISTÍN YNGVADÓTTIR

21.1.2020

Sunnudaginn 26.janúar kl.14 leiðir Harpa Þórsdóttir safnstjóri Listasafns Íslands gesti um sýninguna Eintal, yfirlitssýningu Jóhönnu Kristínu Yngvadóttur (1953-1991).

ATH. síðasta sýningarhelgi

Aðgangseyrir á safnið gildir, frítt fyrir meðlimi Selmuklúbbsins.________________________________________________Eintal – Jóhanna Kristín Yngvadóttir

Listasafn Íslands efnir til yfirlitssýningar á verkum Jóhönnu Kristínar Yngvadóttur (1953−1991) sem kom fram á sjónarsviðið snemma á níunda áratug síðustu aldar með eftirminnilegum hætti. Expressjónísk málverk Jóhönnu Kristínar vöktu eindæma hrifningu samferðamanna hennar og lofuðu gagnrýnendur einum rómi þennan unga listamann sem þótti óvenju þroskaður og fágaður.Í verkum sínum túlkaði hún innri og ytri tilfinningaheim af einlægni með kraftmiklum strokum og litaflekum og notaði óspart dökka litaskala og dró fram margslungin tákn í áhrifamiklum verkum. Um verk sín sagði hún meðal annars: „Ég fjalla um samskipti mín við fólk. Fólk er það sem hefur mest áhrif á mann, það veldur gleði og sorg.“Jóhanna Kristín lauk námi frá Myndlista- og handíðaskóla Íslands árið 1976 og stundaði framhaldsnám í Hollandi við De Vrije Academie den Haag og Rijksakademie Van Beeldende Kunsten í Amsterdam, þaðan sem hún lauk prófi 1980.Ferill Jóhönnu Kristínar Yngvadóttur á sér fáar hliðstæður í íslenskri samtímalistasögu. Hann spannaði einungis tæpan áratug frá því að hún sýndi á sinni fyrstu einkasýningu í Nýlistasafninu árið 1983 og þar til hún lést árið 1991 og gefa verkin á sýningunni heildstæða sýn á framlag Jóhönnu Kristínar til málverksins í íslenskri myndlist.Verið velkomin í Listasafn ÍslandsMynd: Jóhanna Kristín Yngvadóttir, Lára, 1980.

Fjársjóður íslenskrar myndlistar

Safnið er opið alla daga frá 10 — 17, lokað á mánudögum yfir vetrartímann (1.10 — 30.4)