SPEGILMYND –LEIÐSÖGN Í SAFNI ÁSGRÍMS JÓNSSONAR

14.10.2015

Eyrún Óskarsdóttir, listfræðingur verður með leiðsögn í Safni Ásgríms Jónssonar sunnudaginn 15. nóvember kl. 16.

Í safneign Listasafns Íslands er að finna 29 verk eftir Ásgrím Jónsson með heitinu Sjálfsmynd og á  sýningunni eru 15 þeirra. Elstu sjálfsmyndina af þeim sem til eru á sýningunni málaði Ásgrímur á sama árinu og hann hóf nám við Listaháskólann í Kaupmannahöfn, árið 1900 en þær yngstu eru frá sjötta áratugnum. 

Eyrún mun fjalla um feril listamannsins og tengja málverkin sem hanga uppi í íbúð listamannsins og verkin á sýningunni Spegilmynd á vinnustofunni.Safnið er opið frá kl. 14.00 - 17.00.

Fjársjóður íslenskrar myndlistar

Safnið er opið alla daga frá 10 - 17