SUNNUDAGSLEIÐSÖGN UM LISTÞRÆÐI

30.9.2020

Sunnudagsleiðsögn um ListþræðiSunnudaginn 4. október kl. 14 leiðir Rakel Pétursdóttir sérfræðingur hjá Listasafni Íslands gesti um sýninguna Listþræðir.Á aldarafmæli Ásgerðar Búadóttur gefst tilefni til að horfa sérstaklega til vefnaðar og þráðlistar í íslenskri samtímalist og þess hvernig listamenn hafa notað þráðinn, þennan fjölbreytta efnivið; spunnið hann, litað, ofið og formað eftir öllum kúnstarinnar reglum.Textíllistin er yfirgripsmikil listgrein með langa sögu og fjölda skilgreindra aðferða sem krefjast einatt mikillar kunnáttu og færni. Í dag ríkir mikil gróska í þráðlistinni, bæði hér á landi og erlendis, og hafa yngri kynslóðir listamanna sýnt þræðinum sem efniviði mikinn áhuga.Endurspeglast það meðal annars í því hvernig mörk listgreina hafa máðst út á síðustu áratugum. Í verkum margra samtímalistamanna má einnig greina tilraunakenndar leiðir og uppbrot á viðteknum aðferðum textíllistar sem sýnir okkur hvernig rótgróin listsköpun getur öðlast nýja vídd.Í safneign Listasafns Íslands er nokkur fjöldi listaverka þar sem unnið er með þráð sem efnivið með margvíslegum hætti. Við val á verkum fyrir sýninguna var einnig leitað í safneignir annarra listasafna og í einkasöfn. Listaverkin á sýningunni endurspegla ólíkar aðferðir listamanna, þráðinn í sinni hefðbundnu mynd innan rótgróinna aðferða sem og óvæntar og nýstárlegri útfærslur þar sem þráðurinn gegnir aðalhlutverki.Listamenn sem eiga verk á sýningunni:Anna Líndal,Anna Þóra Karlsdóttir,Arna Óttarsdóttir,Auður Vésteinsdóttir,Ása Ólafsdóttir,Ásgerður Búadóttir,G. Erla – Guðrún Erla Geirsdóttir,Guðrún Gunnarsdóttir,Guðrún Marinósdóttir,Hildur Ásgeirsdóttir Jónsson,Hildur Bjarnadóttir,Hildur Hákonardóttir,Hólmfríður Árnadóttir,Hrafnhildur Arnardóttir – Shoplifter, Hrafnhildur Sigurðardóttir,Ingibjörg Styrgerður Haraldsdóttir, Ingunn Fjóla Ingþórsdóttir,Ívar Valgarðsson,Jonna – Jónborg Sigurðardóttir,Kristinn G. Harðarson,Kristín Gunnlaugsdóttir,Kristín Jónsdóttir frá Munkaþverá,Lilý Erla Adamsdóttir,Loji Höskuldsson,Nína Gautadóttir,Oddný E. Magnúsdóttir,Ólöf Einarsdóttir,Pétur Magnússon,Ragna Róbertsdóttir,Ragnheiður Björk Þórsdóttir,Rósa Sigrún Jónsdóttir,Sigrún Sverrisdóttir,Sigurlaug Jóhannesdóttir,Vigdís Kristjánsdóttir,Þorbjörg Þórðardóttir,Þór Vigfússon,Þórdís Alda Sigurðardóttir.Sýningarstjórar:Dagný Heiðdal og Harpa ÞórsdóttirAðgangseyrir á safnið gildir. Reglum um fjöldatakmarkanir er framfylgt með talningu gesta.

Fjársjóður íslenskrar myndlistar

Safnið er opið alla daga frá 10 - 17