SÝNINGAR Í LISTASAFNI SIGURJÓNS ÓLAFSSONAR OG SAFNI ÁSGRÍMS JÓNSSONAR

20.1.2016

Að loknu námi við Konunglega listaháskólann í Kaupmannahöfn hraðar Ásgrímur sér heim til Íslands, frelsinu feginn með tilhlökkun í hjarta. Helsti ásetningur hans var að tengjast landinu á nýjan leik og nýta áunna þekkingu til að mála náttúru landsins og tjá þannig ást sína á landi og þjóð. Fanga augnablikið, hina síhvikulu birtu og mála úti við að hætti „plein air“-málaranna frönsku og gullaldarmálaranna dönsku, en flestir kennarar Ásgríms, svo sem Frederik Vermehren, Otto Bache og Holger Grønvold, voru af Eckersberg-skólanum. C.W. Eckersberg (1783–1853) var einn dáðasti listmálari Dana og um tíma prófessor og skólastjóri Konunglega listaháskólans og eru heiðursverðlaun Akademíunnar kennd við hann. Við heimkomuna árið 1909 sækir Ásgrímur á æskuslóðirnar og síðan áfram austur í Skaftafellssýslur árin 1910, 1911 og 1912. 

Afrakstur þessara ferðalaga birtist í fjölmörgum olíu- og vatnslitamálverkum þar sem listamaðurinn túlkar hina tæru birtu á meistaralegan hátt. Á sýningunni eru bæði olíu- og vatnslitamyndir frá árunum 1909 til 1928. 

Sýningarstjórinn Rakel Pétursdóttir verður með leiðsögn um sýninguna föstudaginn 5. febrúar kl. 20.

Portrett af konum eftir Sigurjón Ólafsson ásamt öðrum verkum hans, höggvin í stein eða tré, þar sem hinni kvenlegu ímynd - das ewig weibliche - er lýst og hún tekur á sig mynd gyðjunnar. Sýningin er í tilefni þess að 100 ár eru liðin frá því að konur fengu kosningar­rétt á Íslandi.

Sigurjón Ólafsson er meðal þekktustu portrett­listamanna Norðurlanda og eftir hann liggja rúmlega 200 andlits­myndir. Flestar eru þær af karlmönnum í ábyrgðar­stöðum í þjóð­félaginu, en kven­portrett Sigurjóns eru síður þekkt, að undan­skilinni myndinni sem hann gerði af móður sinni á 1938. Fyrir þá mynd hlaut Sigurjón hin eftir­sóttu dönsku Eckersberg verðlaun árið 1939. Ríkis­listasöfn þriggja Norðurlanda eiga eintök af þeirri mynd.Birgitta Spur, sýningarstjóri, verður með leiðsögn um sýninguna föstudaginn 5. febrúar kl. 21.

Fjársjóður íslenskrar myndlistar

Safnið er opið alla daga frá 10 - 17