Tilnefning til Viðurkenningar Hagþenkis 2025

3.3.2026

Kristján H. Magnússon – Listamaðurinn sem gleymdist er tilnefnd til Viðurkenningar Hagþenkis 2025

Kristján H. Magnússon – Listamaðurinn sem gleymdist er meðal þeirra tíu rita sem tilnefnd eru til Viðurkenningar Hagþenkis fyrir útgáfuárið 2025.

Í tilkynningu segir: Vandað og glæsilegt verk um myndlistarmann sem hefur fengið takmarkaða athygli. Bókin er byggð á víðtækri rannsókn um verk Kristjáns og æviferil.

Ritstjóri og jafnframt höfundur þessarar yfirgripsmiklu bókar um ævi og verk Kristjáns H. Magnússonar er Einar Falur Ingólfsson, en auk hans rituðu Guðmundur Oddur Magnússon og Dagný Heiðdal greinar í bókina. Ættingjar Klöru Helgadóttur eiginkonu Kristjáns og afkomendur þeirra hjóna stóðu að útgáfunni, ásamt Listasafni Íslands.

Vorið 2025 var sett upp yfirlitssýning á verkum Kristjáns H. Magnússonar í Listasafni Íslands, þar sem sjónum var beint að verkum þessa sammlífa listamanns sem lést aðeins 24 ára að aldri árið 1937 eftir stuttan en áhugaverðan feril.

Bókin er fáanleg í safnbúðum Listasafns Íslands og í vefverslun.

Bókin er fáanleg í safnbúðum Listasafns Íslands og í vefverslun.

Kristján H. Magnússon 1903-1937

Vetur á Þingvöllum, 1932

LÍ-503

Fjársjóður íslenskrar myndlistar

Listasafnið við Tjörnina, Safnahúsið og Listasafn Einars Jónssonar eru opin alla daga 10–17