Nýlega gaf Viljandi minningarsjóður Listasafni Íslands höfðinglega gjöf, stóra epíska teikningu í þremur hlutum eftir Sigurð Ámundason (f. 1986) sem ber heitið Hráir dagar áts og ofsa. Verkið er 200 x 900 cm að stærð, unnið á árunum 2023 til 2024 með trélit, kúlupenna og bleki á pappír. Verkið var unnið sérstaklega fyrir sýninguna After the Sun – Forcasts from the North sem sett var upp í Buffalo AKG listasafninu í New York fylki og í Gammel Strand í Kaupmannahöfn. Á sýningunni var fjallað um umhverfisvá sem steðjar að mannkyninu.
Sigurður Ámundason hefur teiknað frá barnæsku og er þekktur fyrir stórar teikningar þar sem hann kannar samskipti og samskiptaleysi mannskepnunnar. Í umræddu verki er myndefnið mannverur sem blandast og togast á við náttúruna. Að sögn listamannsins er heiti verksins vísun í samtímann, köld lýsing á núverandi ástandi í þeirri von að framtíðin verði ástkærari, skilningsríkari og lausari við sjálfstortímandi samkeppni.
Listasafn Íslands metur mikils þann hlýhug og hugulsemi sem því er sýndur með gjöfinni. Í gegnum tíðina hafa safninu borist margar gjafir frá listamönnum og velviljuðum aðilum sem mynda hryggjarstykkið í safneigninni og eru ómetanlegur stuðningur við listasafn þjóðarinnar.
Höfðingjaleg gjöf til Listasafns Íslands








