Listasafn Einars Jónssonar
Aðstaðan
Alla daga
Staðsetning
Símanúmer
Listasafn Einars Jónssonar, staðsett í hjarta Reykjavíkur við Skólavörðuholt, er einstakur staður sem býður gestum upp á margbrotna upplifun í sögulegu umhverfi.
Einar Jónsson teiknaði húsið, Hnitbjörg, og bjó þar með konu sinni Önnu um áratugaskeið. Safnið var síðan opnað almenningi árið 1923 og hafa þar með opnast dyr inn í hugarheim Einars Jónssonar, brautryðjanda íslenskrar myndhöggvaralistar, sem sótti innblástur í þjóðsögur, trúarhugmyndir og dulspeki og skapaði verk sem fjalla um baráttu efnis og anda.
Auk sýningarinnar Andi og efnisbönd, sem gefur djúpa innsýn í sköpunarverk Einars Jónssonar er hægt að heimsækja höggmyndagarðinn á bak við húsið þar sem 26 bronsafsteypur verka Einars prýða gróskumikinn garð sem er opinn öllum, árið um kring, dag og nótt. Í húsinu má einnig skoða einstaka íbúð Einars og Önnu Jónsson þar sem frumlegur stíll og persónulegir gripir varðveitast í upprunalegri mynd.
Við bjóðum öll velkomin – hvort sem um er að ræða listunnendur, fjölskyldur eða þá sem vilja kynna sér sögu og menningu Reykjavíkur í óvenjulegu og fallegu umhverfi. Komdu og upplifðu töfra Listasafns Einars Jónssonar!
Staðsett í hjarta Reykjavíkur við Skólavörðuholt, Hallgrímstorgi 3.
