
Krakkaklúbburinn Krummi
lau
21. nóv
14:00—16:00
Glóandi geislabaugar
Geislabaugar eru algeng tákn fyrir heilagleika og góðmennsku. Í verkum Einars Jónssonar koma fyrir margskonar geislabaugar. Sumir eru einfaldir og sléttir á meðan aðrir ná utan um heila manneskju og eru mynstraðir. Við skoðum þessa fjölbreyttu og fallegu geislabauga og búum svo við til okkar eigin geislabaug til að setja upp um leið og við hugsum um mikilvægi þess að vera góðar manneskjur.
Krakkaklúbburinn Krummi stendur fyrir fjölbreyttri og skemmtilegri dagskrá í hverjum mánuði þar sem kátum krökkum er boðið að fræðast um sýningarnar í Listasafns Íslands, skapa listaverk og leika sér í nærandi umhverfi. Með Krakkaklúbbnum Krumma vill Listasafn Íslands veita börnum og fjölskyldum þeirra tækifæri til þess að njóta góðra stunda saman á safninu. Dagskráin er vönduð og öllum er velkomið að taka þátt, sér að kostnaðarlausu.
Staðsetning: Listasafn Einars Jónssonar

