
Krakkaklúbburinn Krummi
lau
16. maí
14:00—16:00
Álfakórónur
Álfar eru náttúruverur sem vernda náttúruna og eru mikilvægur hluti þjóðtrúar okkar. Við skoðum álfaverkin á sýningunni Stattu og vertu að steini og þá sérstaklega hina virðulegu álfadrottningu í verki Finns Jónssonar Stóð ég úti í tunglsljósi.
Svo notum við fjölbreytt efni til að skreyta okkar eigin kórónur sem við búum til saman.
Krakkaklúbburinn Krummi stendur fyrir fjölbreyttri og skemmtilegri dagskrá í hverjum mánuði þar sem kátum krökkum er boðið að fræðast um listaverkin í safneign Listasafns Íslands, skapa listaverk og leika sér í nærandi umhverfi.

