Fimmtudagurinn langi

fim

27. mars

17:0022:00

Listasafnið
Fimmtudagur langi

Fimmtudagurinn langi í Mars

Við bjóðum ykkur velkomin á leiðsögn kl. 20:00 hjá Pari Stave sýningarstjóra Listasafns Íslands um sýningu Hildigunnar Birgisdóttur Þetta er mjög stór tala (Commerzbau). Ath. leiðsögnin fer fram á ensku.

Sýningin var framlag Íslands til tvíæringsins í Feneyjum árið 2024. Þessi hárbeitta og gáskafulla sýning samanstendur af skúlptúrum og innsetningum sem kafa ofan í hið kynlega samband okkar mannfólksins við fjöldaframleiddu hlutina sem umkringja okkur. Sýningarstjóri er Dan Byers.

Síðasta fimmtudag hvers mánaðar er Listasafn Íslands og kaffihúsið Kaktus Espressobar opið til 22:00 og gestum býðst að kaupa árskort í safnhús Listasafns Íslands á almennu miðaverði.

Fylgist með spennandi dagskrá langra fimmtudaga á samfélagsmiðlum og heimasíðu Listasafns Íslands.

Fjársjóður íslenskrar myndlistar

Safnið er opið alla daga frá 10 - 17