Fimmtudagurinn langi

fim

30. okt

17:0022:00

Fimmtudagur langi
Listasafnið

Síðasta fimmtudag hvers mánaðar er Listasafn Íslands opið til 22:00.

Kaffihúsið Kaktus Espressobar er einnig opið til 22:00 á Fimmtudaginn langa. Happy Hour á víni og bjór frá 17 – 20. Tapasplatti með vínglasi á tilboði á 2.900.

20:00 - 21:00
Á Fimmtudaginn Langa mun þeramínleikarinn, myndlistarmaðurinn og pródúserinn Ólöf Rún Benediktsdóttir, flytja spunahljóðverk sem blandar þeremínleik saman við hljóðupptökum frá 70 - 100 ára gömlum vatnsaflsvirkjunum í einkaeigu. Upptökurnar voru teknar upp á árunum 2021-2023 sem partur af rannsóknarvinnu fyrir sýninguna Rafóm sem hún hélt í samstarfi við myndlistarkonuna Rán Jónsdóttur.

Tónlist Ólafar einkennist af rafmögnuðum tilfinningaþunga, þar sem draumkenndar laglínur fluttar af söng og þeremíni fléttast saman við drungalegan hljóðheim gerðan með sömplum og hljóðgervlum.

Fylgist með spennandi dagskrá langra fimmtudaga á samfélagsmiðlum og heimasíðu Listasafns Íslands.

Aðgöngumiði á safnið gildir.

Fjársjóður íslenskrar myndlistar

Listasafnið við Tjörnina, Safnahúsið og Listasafn Einars Jónssonar eru opin alla daga 10–17