
Fimmtudagurinn langi
fim
27. nóv
17:00—22:00
Móttaka vegna afhendingar á dúkristum Ástu Sigurðardóttur
Við bjóðum ykkur hjartanlega velkomin að vera við móttöku á Fimmtudaginn Langa milli 20 og 21 í Listasafni Íslands, þar sem safninu verða afhentar dúkristur eftir Ástu Sigurðardóttur.
Ásta Sigurðardóttir (1930-1971) sýndi ung listræna hæfileika bæði á sviði rit- og myndlistar. Hún vakti fyrst athygli með smásögunni Sunnudagskvöld til mánudagsmorguns sem birtist með myndskreytingum Ástu í tímaritinu Lífi og list árið 1951. Tíu árum síðar kom út smásagnasafn Ástu með sama nafni sem þótti mjög ögrandi og storka viðteknu siðgæði. Fjórtán dúkristur eftir Ástu prýða bókina, táknrænar myndir sem tjá og túlka textann.
Afkomendur Ástu hafa varðveitt dúkana sem hún skar út fyrir útgáfuna árið 1961 og hafa nú ákveðið að færa þá Listasafni Íslands að gjöf sem verður afhent formlega næstkomandi fimmtudaginn. Hluti dúkanna verður þá til sýnis ásamt grafíkmyndum í eigu Listasafns Íslands, sem grafíklistamaðurinn Guðmundur Ármann þrykkti árið 2023 eftir dúkristum Ástu að frumkvæði afkomenda hennar.
Síðasta fimmtudag hvers mánaðar er Listasafn Íslands opið til 22:00.
Kaffihúsið Kaktus Espressobar er einnig opið til 22 og býður Happy Hour á víni og bjór frá 17 – 20. Tapasplatti með vínglasi á tilboði á 2.900.

