
Krakkaklúbburinn Krummi
lau
10. okt
14:00—16:00
Fjarlægðin gerir fjöllin blá
Jóhannes S. Kjarval ólst upp á Austurlandi og sótti þangað innblástur alla tíð. Við skoðum hvernig Kjarval fangar íslenska náttúru og æskuslóðir sínar, málum síðan fjöll sem minna okkur á staði sem skipta okkur máli. Sérð þú kannski fjall út um gluggann þinn, af skólalóðinni eða á leiðinni heim? Hvaða landslag tengir þú við þínar eigin minningar?
Krakkaklúbburinn Krummi stendur fyrir fjölbreyttri og skemmtilegri dagskrá í hverjum mánuði þar sem kátum krökkum er boðið að fræðast um sýningarnar í Listasafns Íslands, skapa listaverk og leika sér í nærandi umhverfi. Með Krakkaklúbbnum Krumma vill Listasafn Íslands veita börnum og fjölskyldum þeirra tækifæri til þess að njóta góðra stunda saman á safninu. Dagskráin er vönduð og öllum er velkomið að taka þátt, sér að kostnaðarlausu.
Staðsetning: Fríkirkjuvegur 7

