Tumi með rauðan hatt

Krakkaklúbburinn Krummi

lau

7. sept

14:0016:00

lau

21. sept

14:0016:00

Listasafnið
Krummi

Frussandi Fossar
Skapandi aðferðir við vatnslitun í tengslum við Hringrás, sýningu Tuma Magnússonar. Við sjáum hvernig vatnslitir bregðast við salti og málum með sápukúlum, til að herma eftir vatnsfroðu sem gjarnan myndast í frussandi fossum og seytlandi lækjum.  

Krakkaklúbburinn Krummi stendur fyrir fjölbreyttri og skemmtilegri dagskrá í hverjum mánuði þar sem kátum krökkum er boðið að fræðast um listaverkin í safneign Listasafns Íslands, skapa listaverk og leika sér í nærandi umhverfi.

Með stofnun krakkaklúbbsins vill Listasafn Íslands veita börnum og fjölskyldum þeirra tækifæri til þess að njóta góðra stunda saman á safninu. Dagskráin er vönduð og öllum er velkomið að taka þátt, sér að kostnaðarlausu.

Merki krakkaklúbbsins er fengið út barnabókinni Rauði hatturinn og krummi eftir Ásgerði Búadóttur myndlistarmann.

Fjársjóður íslenskrar myndlistar

Safnið er opið alla daga frá 10 - 17