Gæðastund

mið

14. feb

14:0015:00

Listasafnið
Gæðastundir

Tækni í listaverkum – möguleikar og nýjar áskoranir
Ólafur Ingi Jónsson forvörður hjá Listasafni Íslands, fjallar um möguleika og nýjar áskoranir við uppsetningu listaverka sem krefjast flókinna tæknilegra úrlausna. Tekin verða dæmi um slík verk á sýningu Egils Sæbjörnssonar í Listasafni Íslands.

Gæðastundir
Gæðastundir eru viðburðir sem ætlaðir eru fólki á besta aldri, 67+. Viðburðirnir eru samsettir af sérsniðnum leiðsögnum og spjalli við sérfræðinga safnsins um myndlist, yfirstandandi sýningar og starfsemi.
Viðburðirnir skapa tækifæri fyrir gesti til að nálgast myndlistina og menningararf þjóðarinnar á margvíslegan hátt. Ávallt er boðið upp á kaffi og meðlæti á gæðastundum í Listasafni Íslands. Bakkelsið er í boði Brauðs og Co sem styrkir verkefnið.

Aðgangseyrir á safnið gildir.

Fjársjóður íslenskrar myndlistar

Safnið er opið alla daga frá 10 - 17