Tveir drengir að teikna

Krakkaklúbburinn Krummi

lau

9. sept

14:0016:00

lau

23. sept

14:0016:00

Listasafnið
Krummi

Hugsun um teikninguna
Teikningar Kjarvals veita innblástur að teikningu á safninu. Frábært tækifæri til þess að leyfa listrænum hæfileikum að njóta sín í fallegu umhverfi undir leiðsögn teiknara. Umsjón með smiðju: Linda Ólafsdóttir


Krakkaklúbburinn Krummi stendur fyrir fjölbreyttri og skemmtilegri dagskrá í hverjum mánuði þar sem kátum krökkum er boðið að fræðast um listaverkin í safneign Listasafns Íslands, skapa listaverk og leika sér í nærandi umhverfi. Með stofnun krakkaklúbbsins vill Listasafn Íslands veita börnum og fjölskyldum þeirra tækifæri til þess að njóta góðra stunda saman á safninu. Dagskráin er vönduð og öllum er velkomið að taka þátt, sér að kostnaðarlausu.

Fjársjóður íslenskrar myndlistar

Safnið er opið alla daga frá 10 - 17