Skuggar á vegg rgb litir

Krakkaklúbburinn Krummi

lau

11. nóv

14:0016:00

lau

25. nóv

14:0016:00

Safnahúsið
Krummi

Ég á lítinn, skrítinn skugga!
Skemmtileg skuggasmiðja í Safnahúsinu, þar sem við skoðum ljós og skugga í listaverkunum, leikum okkur með okkar eigin skugga og búum til skuggalistaverk.  
Umsjón með smiðju: Ingibjörg Hannesdóttir

Krakkaklúbburinn Krummi stendur fyrir fjölbreyttri og skemmtilegri dagskrá í hverjum mánuði þar sem kátum krökkum er boðið að fræðast um listaverkin í safneign Listasafns Íslands, skapa listaverk og leika sér í nærandi umhverfi. Með stofnun krakkaklúbbsins vill Listasafn Íslands veita börnum og fjölskyldum þeirra tækifæri til þess að njóta góðra stunda saman á safninu. Dagskráin er vönduð og öllum er velkomið að taka þátt, sér að kostnaðarlausu.

Fjársjóður íslenskrar myndlistar

Safnið er opið alla daga frá 10 - 17