krossgötur : 重鳴り

fös

30. okt

20:00—21:00

Listasafn Einars Jónssonar

Nordic Affect tekur þátt í tónleikainnsetningunni 'krossgötur : 重鳴り' eftir Masaya Ozaki og Lilju Maríu Ásmundsdóttur. Flytjendur eru Halla Steinunn Stefánsdóttir á barokkfiðlu, Guðrún Óskarsdóttir á sembal og tónskáldin sjálf sem munu leika á hljóðskúlptúra og ýmsa fundna hluti. Masaya og Lilja hafa unnið saman að nokkrum verkum sem sækja innblástur í hversdaginn. Nálgun þeirra að því að semja saman má lýsa sem skapandi ferli í stöðugri þróun innblásið af reglulegum gönguferðum.

Viðburðurinn fer fram í Listasafni Einars Jónssonar og gengið er inn í gegnum skúlptúrgarðinn. Verkið dregur innblástur frá byggingunni sjálfri og ákveðnum þemum sem Einar Jónsson vann með í verkum sínum. Með því að nýta mismunandi rými á fyrstu hæð hússins ásamt skúlptúrgarðinum skapar verkið hljóðgarðsupplifun þar sem ólíkar lífverur, þjóðsagnaverur og fyrirbæri dvelja á mismunandi stöðum innan hússins: skordýr syngjandi að nóttu til, draugalegt andrúmsloft, hvísl þjóðsagna og nýir veðurhljóðskúlptúrar í garðinum. Áhorfendum er boðið að ganga um safnið og upplifa verkið út frá mismunandi sjónarhornum.

Tónsmíðarnar eru styrktar af Tónskáldasjóði RÚV og STEFs. Nordic Affect er styrkt af Tónlistarsjóði og Reykjavíkurborg.

Listasafn Einars Jónssonar (gengið er inn í gegnum skúlptúrgarð safnsins)
Miðar: 3.500 kr. / Nemar, eldri borgarar og öryrkjar: 2.500 kr.

Fjársjóður íslenskrar myndlistar

Listasafnið við Tjörnina, Safnahúsið og Listasafn Einars Jónssonar eru opin alla daga 10–17