Leiðsögn listamanna
sun
4. maí
14:00—15:00
Leiðsögn listamanna – Nánd hversdagsins
Listamennirnir Orri Jónsson og Agnieszka Sosnowska taka á móti gestum og leiða um sýninguna Nánd hversdagsins sem samanstendur af rúmlega 60 ljósmyndum eftir þekkta alþjóðlega listamenn, þau Agnieszku Sosnowska, Joakim Eskildsen, Niall McDiarmid, Orra Jónsson og Sally Mann. Sýningin er hluti af Ljósmyndahátíð Íslands. Verkin á sýningunni voru valin úr ákveðnum myndaröðum úr höfundarverki hvers og eins listamanns þar sem birtist djúp ástríða fyrir því að ljósmynda fólk á þeim stöðum sem standa því næst.