![](/_next/image/?url=https%3A%2F%2Fimages.prismic.io%2Flistasafn-islands%2FZkYKNSol0Zci9NOS_Sigur%25C3%25B0urGu%25C3%25B0mundssonHommage%25C3%25A1Grieg100x80cm1971.jpg%3Fauto%3Dformat%2Ccompress&w=3840&q=100)
Leiðsögn safnstjóra
sun
13. okt
14:00—15:00
Leiðsögn safnstjóra
Ingibjörg Jóhannsdóttir safnstjóri leiðir gesti um sýninguna Innsýn, útsýn – Listasafn Íslands í 140 ár.
Í tilefni af 140 ára afmæli Listasafns Íslands er efnt til sýningar á völdum listaverkum úr safneigninni eftir um 100 listamenn frá mismunandi tímabilum listasögunnar. Sýningin er haldin í öllum fjórum sölum safnbyggingarinnar við Fríkirkjuveg og skiptist í fjögur meginþemu: form, manneskjan, samfélag og landslag. Sýningin endurspeglar ekki aðeins það hlutverk Listasafns Íslands að byggja upp safnkost sem endurspeglar strauma og stefnur í listum hverju sinni, heldur einnig mikilvægi safnsins sem varðveislustaðar og lifandi vettvangs skoðanaskipta.