
Leiðsögn sérfræðings
sun
31. ágúst
14:00—15:00
Kristján H. Magnússon
Vetur á Þingvöllum, 1932
LÍ-503
Málverk Kristjáns Helga Magnússonar vöktu mikla hrifningu þegar hann geystist fram á myndlistarvettvanginn fyrir tæpum 100 árum. Verk hans vöktu athygli víða erlendis og hann hélt sýningar í stórborgum austan hafs og vestan. Á Íslandi hlutu verk hans hins vegar blendnar viðtökur og í dag eru þau fáum kunn og nafn hans heyrist sjaldan í umræðunni um íslenska myndlist. Engu að síður er framlag hans til listasögunnar töluvert að vöxtum og áhugavert fyrir margra hluta sakir. Á væntanlegri yfirlitssýningu beinir Listasafn Íslands sjónum að verkum þessa skammlífa listamanns sem lést árið 1937, aðeins 34 ára að aldri, eftir stuttan en áhugaverðan feril.
Aðgöngumiði gildir.