Leiðsögn sýningarstjóra

sun

8. feb

14:0015:00

Listasafnið

Leiðsögn sýningarstjóra

Æsa Sigurjónsdóttir sýningarstjóri leiðir gesti um sýninguna Sjávarblámi.

Sjávarblámi

Hvernig getur myndlistin skapað nýja sýn á heiminn, sjónarhorn sem eru ekki hugsuð út frá manninum einum heldur öllum hinum lífverunum? Á sýningunni Sjávarblámi bregða listamennirnir Bryndís Snæbjörnsdóttir og Mark Wilson ljósi á flókin tengsl manna og hvala.

Í rúma tvo áratugi hafa þau Bryndís og Mark verið í fararbroddi þverfaglegra rannsókna á siðferðilegum álitamálum er lúta að sambandi ólíkra tegunda; viðfangsefni sem verður sífellt brýnna í skugga aldauða tegundanna.

Þau skoða samskipti fólks og dýra með hliðsjón af rannsóknum vísinda- og fræðimanna úr ólíkum greinum og fjalla um menningarlega og samfélagslega þætti sem hafa áhrif á vistkerfi og hegðun manna og annarra skepna.  

Í grafíkverkum sínum, vatnslitamyndum, skúlptúrum, hljóðinnsetningum og myndbandsverkum opna Bryndís og Mark samtal um viðkvæmt viðfangsefni sem byggir á menningarsögulegri orðræðu og táknfræðilegum vísunum.

Á sýningunni Sjávarblámi einbeita þau sér að lífi tiltekinna hvala sem þau hafa fylgst með, ýmist í gegnum frásagnir annarra eða milliliðalaust í vettvangsferðum á Skjálfanda. Þau bregða upp þversagnakenndri mynd, annars vegar af tilfinningalegum viðbrögðum mannfólksins við hvalreka og hins vegar deilum um hvalveiðar við Ísland. Á sýningunni  skapast tækifæri til að endurmeta hið flókna og mótsagnakennda samband mannfólks og hvala.

Fjársjóður íslenskrar myndlistar

Safnið er opið alla daga 10–17