Leiðsögn um Ganginn í 40 ár
sun
5. feb
14:00—15:00
Gangurinn gallerí í 40 ár
Leiðsögn Helga Þorgils Friðjónssonar um sýninguna Gangurinn gallerí í 40 ár.
Gangurinn gallerí er listamannarekið sýningarrými sem stofnað var af myndlistarmanninum Helga Þorgils Friðjónssyni árið 1979 og er líklega elsta einkarekna gallerí landsins sem starfað hefur samfellt frá stofnun.
Árið 2020 var haldið upp á 40 ára afmæli Gangsins með sýningu á verkum þeirra erlendu listamanna sem hafa átt verk á sýningum Gangsins í gegnum tíðina. Hjónin Helgi Þorgils og Rakel Halldórsdóttir gáfu verkin sem voru á sýningunni til Listasafns Íslands sem safnið efnir nú til sýningar á.