Leiðsögn sérfræðings

sun

9. nóv

14:0015:00

Listasafnið

Steina, Violin Power I, 1970-1978. Myndband, 10,04 mín.
Birt með leyfi listamannsins, BERG Contemporary og Vasulka Foundation.

Steina – Tímaflakk

Halldór Björn Runólfsson, listfræðingur og fyrrum safnstjóri Listasafns Íslands leiðir gesti um sýninguna Steina – Tímaflakk.

Sýningin er samstarf Listasafns Íslands og Listasafns Reykjavíkur og verður í báðum söfnunum samtímis. Steina er einn helsti frumkvöðull vídeólistar og nýmiðlunar í heiminum og brautryðjandi og áhrifamanneskja á sviði samtímalistar hérlendis. Með verkum sínum hefur hún á einstakan hátt tengt saman vídeólist, tónlist og tækni á skapandi og frjóan hátt. Sýningin er fyrsta stóra yfirlitssýningin á verkum Steinu hér á landi. Hún er upphaflega skipulögð í Bandaríkjunum undir heitinu Playback og sett þar upp á tveimur söfnum árið 2024 en hér á landi verður hún viðameiri að umfangi og inntaki. Rakinn verður listrænn ferill Steinu frá upphafi til samtímans og birtir sýningin í heild því afar áhugaverða mynd af þróun tækni og listar á síðustu áratugum.

Aðgangseyrir á safnið gildir.

Fjársjóður íslenskrar myndlistar

Safnið er opið alla daga 10–17