Skartgripur eftir Dieter Roth, hringur.

Leiðsögn sýningarstjóra

Listasafnið

Björn Roth sýningarstjóri leiðir gesti um sýninguna Skartgripir Dieters Roth í Listasafni Íslands, sunnudaginn 12. júní kl. 14. Aðgangseyrir á safnið gildir, ókeypis fyrir meðlimi Selmuklúbbsins.

Dieter Roth (1930—1998) var í senn brautryðjandi sem virti engar takmarkanir, hugsuður, frumkvöðull, skáld, tónlistarmaður, kvikmyndagerðarmaður og myndlistarmaður. Færri vita að hann vakti jafnframt athygli fyrir nýstárlega skartgripasmíði sem hann hóf að fást við á Íslandi seint á sjötta áratug síðustu aldar.


Skartgripabox með gripum eftir Dieter Roth

Skartgripabox með gripum eftir Dieter Roth

Fyrstu skartgripirnir sem Dieter hannaði voru unnir í samstarfi við konu hans, Sigríði Björnsdóttur, heima á eldhúsborðinu og fljótlega bauðst þeim betri aðstaða á verkstæði Halldórs Sigurðssonar gullsmiðs að Skólavörðustíg 2.

Skartgripi Dieters, sem hann gerði gjarnan úr skrúfum, boltum og öðrum mekanískum hlutum, mátti setja saman á mismunandi vegu og breyta þeim. Nálgun hans við skartgripagerð var hin sama og einkenndi myndlist hans; að nýta ýmiss konar efni sem almennt var talið rusl eða úrgangur og umbreyta því. Engir þessara muna eru eins, Dieter þekkti eiginleika efniviðarins og vann hugmyndir sínar beint í hann.

Á sjöunda áratug síðustu aldar hófu Dieter Roth og svissneski gullsmiðurinn Hans Langenbacher samstarf, en þeir hittust fyrst á vinnustofu Jóns Sigmundssonar gullsmiðs í Reykjavík 1958 og hrifust mjög af vinnubrögðum, efnisnotkun og færni hvor annars.

Í Listasafni Íslands gefst nú í fyrsta sinn tækifæri til að leiða einstaka skartgripi Dieters augum í heildstæðu samhengi. Sýningin ber tilraunagleði myndlistarmannsins og óvenjulegum vinnuaðferðum hans glöggt vitni og varpar nýju ljósi á verk þessa einstaklega fjölhæfa listamanns.

© Dieter Roth Estate 

Courtesy Hauser & Wirth and Dieter Roth Foundation, Hamburg

Fjársjóður íslenskrar myndlistar

Safnið er opið alla daga frá 10 — 17, lokað á mánudögum yfir vetrartímann (1.10 — 30.4)