lógó krakkaklúbbsins

Krakkaklúbburinn Krummi

lau

26. sept

14:0016:00

Krummi
Listasafn Einars Jónssonar

Leir í listaverkagarðinum
Í garði Listasafns Einars Jónssonar eru margar fallegar og áhugaverðar styttur. Með leirklumpi og fleiri náttúrlegum efnum, haustlaufum og greinum - búum við til okkar eigið útilistaverk úti (ef veður leyfir) um leið og við njótum verka Einars úti í garðinum.
Sé veður slæmt verður listasmiðjan haldin inni í safninu.

Krakkaklúbburinn Krummi stendur fyrir fjölbreyttri og skemmtilegri dagskrá í hverjum mánuði þar sem kátum krökkum er boðið að fræðast um sýningarnar í Listasafns Íslands, skapa listaverk og leika sér í nærandi umhverfi. Með Krakkaklúbbnum Krumma vill Listasafn Íslands veita börnum og fjölskyldum þeirra tækifæri til þess að njóta góðra stunda saman á safninu. Dagskráin er vönduð og öllum er velkomið að taka þátt, sér að kostnaðarlausu.

Staðsetning: Listasafn Einars Jónssonar

Fjársjóður íslenskrar myndlistar

Listasafnið við Tjörnina, Safnahúsið og Listasafn Einars Jónssonar eru opin alla daga 10–17