Leiðsögn listamanna

sun

4. maí

14:0015:00

Listasafnið

Listamennirnir Orri Jónsson og Agnieszka Sosnowska taka á móti gestum og leiða um sýninguna Nánd hversdagsins.

Nánd hversdagsins samanstendur af rúmlega 60 ljósmyndum eftir þekkta alþjóðlega listamenn, þau Agnieszku Sosnowska, Joakim Eskildsen, Niall McDiarmid, Orra Jónsson og Sally Mann. Sýningin er hluti af Ljósmyndahátíð Íslands. Verkin á sýningunni voru valin úr ákveðnum myndaröðum úr höfundarverki hvers og eins listamanns þar sem birtist djúp ástríða fyrir því að ljósmynda fólk á þeim stöðum sem standa því næst.

Fjársjóður íslenskrar myndlistar

Listasafnið við Tjörnina, Safnahúsið og Listasafn Einars Jónssonar eru opin alla daga 10–17