
Leiðsögn sýningarstjóra
sun
19. apríl
14:00—15:00
Leiðsögn sýningarstjóra
Pari Stave, sýningarstjóri Listasafns Íslands, leiðir gesti um sýninguna Snertifletir: Samhljómur myndlistar á Íslandi frá 1970.
Ath. Viðburðurinn fer fram á ensku.
Snertifletir: Samhljómur myndlistar á Íslandi frá 1970
Sýning sem hverfist um landslagslist, mínímalisma og konseptlist á Íslandi frá áttunda áratugnum og fram á fyrsta áratug 21. aldar.
Á sýningunni verða verk íslenskra listamanna, en einnig verk erlendra listamanna sem sóttu landið heim á þessum tíma og mynduðu iðulega sterk tengsl við íslenskt listafólk og safnara.
Sýningunni stýra þau Gavin Morrison og Pari Stave, aðalsýningarstjóri Listasafns Íslands, og sækja þau í ríkulega safneign Listasafns Íslands, auk þess sem lykilverk verða fengin að láni frá einkasöfnum í Reykjavík.
Meðal annars verða sýnd verk eftir Carl Andre, Birgi Andrésson, Ingólf Arnarsson, Hamish Fulton, Kristján Guðmundsson, Georg Guðna, Roni Horn, Roger Ackling, Richard Long, Rögnu Róbertsdóttur, Richard Serra, Lawrence Weiner og Ívar Valgarðsson.

