Leiðsögn sýningastjóra

sun

21. sept

14:0015:00

Listasafnið

Pari Stave sýningarstjóri fjallar um verk Inuks Silis Höegh The Green Land. Verkið, sem er frá árinu 2021, er 34 mínútna löng vídeóinnsetning með hljóðmynd eftir danska hljóðlistamanninn Jacob Kirkegaard. Inuk Silis Høegh fæddist í Qaqortoq á Suður-Grænlandi árið 1972 og er kvikmyndaleikstjóri og konseptlistamaður sem vinnur gjarnan á mörkum þessara listgreina. The Green Land er tekið upp í og umhverfis Nuuk og Manisoq á Grænlandi. Verkið er sjónræn hugleiðing um landslag sem er í senn ósnortið og óstöðugt sökum inngripa mannsins og loftslagsbreytinga. Verkið er sýnt í stöðugri hringrás og hverfist um fjögur frumöfl; eld, jörð, vatn og loft – sem birtast sem óræð, græn nærvera í tímabundnum landslagsgjörningum.
Leiðsögnin fer fram á ensku.

Fjársjóður íslenskrar myndlistar

Safnið er opið alla daga 10–17