Leiðsögn um Ganginn í 40 ár

sun

5. feb

14:0015:00

Listasafnið

Gangurinn gallerí í 40 ár
Leiðsögn Helga Þorgils Friðjónssonar um sýninguna Gangurinn gallerí  í 40 ár.
Gangurinn gallerí  er listamannarekið sýningarrými sem stofnað var af myndlistarmanninum Helga Þorgils Friðjónssyni árið 1979 og er líklega elsta einkarekna gallerí landsins sem starfað hefur samfellt frá stofnun.

Árið 2020 var haldið upp á 40 ára afmæli Gangsins með sýningu á verkum þeirra erlendu listamanna sem hafa átt verk á sýningum Gangsins í gegnum tíðina. Hjónin Helgi Þorgils og Rakel Halldórsdóttir gáfu verkin sem voru á sýningunni til Listasafns Íslands sem safnið efnir nú til sýningar á.

Fjársjóður íslenskrar myndlistar

Listasafnið við Tjörnina, Safnahúsið og Listasafn Einars Jónssonar eru opin alla daga 10–17