
Gæðastund
mið
15. jan
—
Leiðsögn sérfræðings um 140 ára afmælissýningu safnsins þar sem finna má valin listaverk úr safneigninni eftir um 100 listamenn frá mismunandi tímabilum listasögunnar.
Sýningin er haldin í fjórum sölum safnbyggingarinnar við Fríkirkjuveg og skiptist í fjögur meginþemu: samfélag; myndir af manneskjum; form, línur og litir; og maður og náttúra. Sýningin endurspeglar ekki aðeins það hlutverk Listasafns Íslands að byggja upp safnkost sem endurspeglar strauma og stefnur í listum hverju sinni, heldur einnig mikilvægi safnsins sem varðveislustaðar og lifandi vettvangs skoðanaskipta.