Málþing
sun
22. mars
13:00—16:00
Sjávarblámi
Í tilefni sýningarinnar Sjávarblámi eftir Bryndísi H. Snæbjörnsdóttur og Mark Wilson, efnir Listasafn Íslands til málþings í Listasafninu við tjörnina þann 22. mars kl.13.
Fimm erindi verða flutt á málþinginu í tengslum við sýninguna ásamt því að Æsa Sigurjónsdóttir sýningarstjóri stýrir umræðum í lokin. Aðgangseyrir á safnið gildir.
Dagskrá:
Kl. 13:00
Sjávarblámi – Bryndís H. Snæbjörnsdóttir og Mark Wilson
Listamennirnir segja frá inntakinu og vinnuferli sínu við gerð sýningarinnar Sjávarblámi sem nú stendur yfir í Listasafni Íslands við Fríkirkjuveg.
Kl. 13:20
Sjávarblámi: Hvalurinn í ótal myndum
Á sýningunni Sjávarblámi er litið á hvalinn sem einstakling fremur en hlutgert viðfangsefni. Með því að flétta saman hugmyndum um lífvald og umhyggjusiðfræði, ögra listamennirnir staðalímyndum og afhjúpa siðferðislega spennu í sambandi manns og náttúru. Í fyrirlestrinum er rýnt í myndir af hvölum og spurt hvort listin geti skapað nýja samfélagslega sýn á samband manna og dýra.
Æsa Sigurjónsdóttir, prófessor í listfræði við Háskóla Íslands og sýningarstjóri.
(Fyrirlesturinn fer fram á íslensku)
--
Kl. 13:50
Bandarískur hvalveiðimaður á Íslandi: Hvernig yfirgefin hvalstöð á Seyðisfirði varð hvatinn að sýningarverkefninu Sjávarblámi
Þessi fyrsta iðnvædda hvalstöð á Vestdalseyri á Seyðisfirði er löngu horfin, en saga hennar myndar bakgrunn til skilnings á breytilegum viðhorfum til tengsla mannsins við hvali.
Pari Stave, sýningarstjóri Listasafns Íslands
(Fyrirlesturinn fer fram á ensku)
--
Kl. 14:10
(Íslands)sléttbakur á villigötum?
Í gegnum samtíma og „framhaldslíf“ sléttbaks sem veiddur er undan ströndum Íslands skoðar þessi fyrirlestur þjóðfræði og efnisleika hvala í Norður Atlantshafi.
Kristinn Schram, dósent í þjóðfræði við Háskóla Íslands
(Fyrirlesturinn fer fram á íslensku)
--
14:30
Sjáfbær nýting og þekkingarhefð
Í erindinu fjallar Þórarinn Blöndal, myndlistamaður um verkun hvals út frá persónulegri reynslu sem veiðimaður og náttúruunnandi. Rætt er um verkun sem þekkingarhefð, þar sem virðing fyrir dýrinu, sjálfbær nýting og náið samband manns og náttúru eru í forgrunni.
Þórarinn Blöndal, myndlistamaður
(Fyrirlesturinn fer fram á íslensku)
--
14:50 – 15:10
Æsa Sigurjónsdóttir, sýningarstjóri stýrir pallborðsumræðum þar sem fyrirlesarar og listamennirnir Bryndís H. Snæbjörnsdóttir og Mark Wilson taka einnig þátt.
