
Málþing í Safnahúsinu
sun
15. feb
14:00—16:00
Listfræðafélag Íslands stendur fyrir málþingi í Safnahúsinu við Hverfisgötu sunnudaginn 15. febrúar næstkomandi kl. 14.00 – 16.00 til heiðurs Hrafnhildi Schram (f.1941).
Hrafnhildur var gerð að heiðursfélaga Listfræðafélags Íslands 1. febrúar síðastliðinn fyrir störf sín á sviði listfræða, sýningarstjórnunar og umfjöllunar um myndlist, af því tilefni verður haldið málþing henni til heiðurs.
Fjölbreytt erindi verða haldin af félagsmönnum með vísunum í rannsóknir hennar og störf en áhugavert ævistarf Hrafnhildar hefur óneitanlega rutt brautina fyrir yngri listfræðinga og sýningargerðarfólk á sviði myndlistar.
Málþingið er opið öllum áhugasömum.

