
Krakkaklúbburinn Krummi
lau
18. apríl
14:00—16:00
Stattu og vertu að steini! Ratleikur
Ratleikur um sýninguna Stattu og vertu að steini!
Hvar stóð álfadrottningin? Hvern er blindrahundurinn að leiða? Hvað eru margir draugar í verkinu Sjálfsmynd með 7 draugum eftir Huldu Hákon? Skuggalegar þjóðsagnaverur veita okkur innblástur í frumlegri listsköpun.
Krakkaklúbburinn Krummi stendur fyrir fjölbreyttri og skemmtilegri dagskrá í hverjum mánuði þar sem kátum krökkum er boðið að fræðast um listaverkin í safneign Listasafns Íslands, skapa listaverk og leika sér í nærandi umhverfi.

