Rottukórinn

fös

6. feb

19:3020:00

Safnahúsið

Rottur gefa frá sér sextán mismunandi hljóð til að tjá gleði á tíðni sem mannseyrað nemur ekki. Þær gefa hver annarri nöfn og leika félagslega leiki samkvæmt reglum sem þær tjá með hljóðum, þar sem þær lifa að mestu í myrkri.

Gunnhildur Hauksdóttir útsetur og stjórnar kórverki fyrir mannsraddir byggt á þessum sextán hljóðum. Rottuhljóðin voru tekin upp með ómsjá [sonographic imagery] á tauga- og hegðunarfræðitilraunastofu í Kanada sem vinnur að því að kortleggja hegðun og hljóð dýra. Gunnhildur teiknaði sextán myndir og útbjó raddskrá úr hverri mynd. Úr þessum efniviði smíðaði hún kórverkið Rottukór. 

Verk Gunnhildar dvelja gjarnan á mörkum hljóðs og myndar. Hún nýtir teikningar til að tengja saman og þýða, t.a.m. dýrahljóð eða landfræðilega atburði fyrir mannsraddir eða hljóðfæri. Verk hennar SkriðaÓróaplott og Kór fyrir einn eru dæmi um slík verk. 

Rottukór var upphaflega flutt á Kjarvalsstöðum árið 2020 en hefur ferðast um Evrópu og verið sýnt og flutt víða. Verkið er í eigu Listasafns Íslands og er núna hluti af sýningunni Viðnám í Safnahúsinu, sem lýkur 2028.

Gunnhildur Hauksdóttir hlaut MFA frá Sandberg Institute í Amsterdam, Hollandi (2006) og BFA Listaháskóla Íslands (2002). Hún vinnur þvert á listgreinar og hefur átt samstarf víða, t.a.m. með og dönsurum, tónskáldum og kórum sem og vísindafólki. Þ.m.t. atferlisfræðingum í verkum sem snúa að spurningum um mörk mennsku, um hreyfingu jarðar og skynjun á tíma, sem og samlífi manna, dýra og jarðvera.

Gunnhildur hefur sýnt alþjóðlega í söfnum og galleríum, t.a.m. í Belvedere 21 Museum í Vín, Museum Municipal do Porto í Portúgal, Galt Museum í Kanda, í Svissneska skálanum á Tvíæringnum í Feneyjum árið 2015 fyrir Lictenstein, í Listasafni Íslands og Listasafni Reykjavíkur. Gunnhildur situr í stjórn Safnasafnsins á Svalbarðseyri og er meðlimur HilbertRaum sýningarrými í Berlín. Verk hennar er að finna í opinberum listasöfnum, safneignum Listasafn Íslands og Nýlistasafnsins í Reykjavík, Goethe Institute og Hess Collection, Safneign Háskólans í Lethbridge, Kanada.

Fjársjóður íslenskrar myndlistar

Safnið er opið alla daga 10–17