Safnanótt 2026

fös

6. feb

17:0023:00

Safnanótt í safnhúsum Listasafns Íslands; Fríkirkjuvegi, Safnahúsinu við Hverfisgötu og Listasafni Einars Jónsson.

Ókeypis aðgangur í öll safnhúsin okkar eftir kl. 17 

Dagskrá:

LISTASAFN ÍSLANDS, Fríkirkjuvegur 7

Happy Hour 17:00-20:00
Kaffihúsið Kaktus Espressobar býður happy hour á víni og bjór. 

Örleiðsagnir 17:30-19:00
Pari Stave, sýningarstjóri Listasafns Íslands veitir örleiðsagnir um fjórar sýningar safnsins. Leiðsagnirnar fara fram á ensku. 
17:30 Grandalaus viðföng – Agniezska Polska
18:00 Sjávarblámi – Bryndís Snæbjörnsdóttir & Mark Wilson
18:30 Snertifletir: Samhljómur myndlistar á Íslandi frá 1970
19:00 Staðarform – Donald Judd & Hörður Ágústsson 

Ginbar 20:00
Spirits of Iceland kynna MÓA GIN. Þetta er ekki bara eitthvað gin... hér hefur verið eimað og fært í flösku ósnortin víðerni íslenskrar náttúru. 

DJ Dóra Júlía 20:00-22:00
Komdu að dansa! Við endurtökum leikinn og bjóðum gestum Safnanætur að dansa með okkur inn í kvöldið þar sem stemningskonan DJ Dóra Júlía heldur uppi stuðinu!

---

SAFNAHÚSIÐ, Hverfisgata 15

Rottukórinn 19:30
Lifandi flutningur í Safnahúsinu Rottur gefa frá sér sextán mismunandi hljóð til að tjá gleði á tíðni sem mannseyrað nemur ekki. Þær gefa hver annarri nöfn og leika félagslega leiki samkvæmt reglum sem þær tjá með hljóðum, þar sem þær lifa að mestu í myrkri. Gunnhildur Hauksdóttir útsetur og stjórnar kórverki fyrir mannsraddir byggt á þessum sextán hljóðum. Á Safnanótt mun hópur kvenna flytja útsetninguna í lessal Safnahússins við Hverfisgötu.
Nánar má lesa um verkið hér: https://www.listasafn.is/heimsaekja/vidburdir/rottukorinn/

Götuhorn upplestur 20:30
Upplestur í Safnahúsinu við Hverfisgötu. Ásta Fanney Sigurðardóttir, myndlistarmaður og skáld ásamt Maríu Elísabetu Bragadóttur, rithöfundi lesa upp úr skáldtextum í bókinni Götuhorn sem gefin var út af Listasafni Íslands í síðasta ári. Þar sameinast myndlist og ritlist í meðförum valdra rithöfunda sem sóttu innblástur sinna skrifa í listaverk á sýningunni Viðnám í Safnahúsinu við Hverfisgötu. 

---

LISTASAFN EINARS JÓNSSONAR, Hallgrímstorg 3

Leiðsögn 18:00
Leiðsögn um verk Einars Jónssonar í tali og tónum.
Þóra Sigurbjörnsdóttir og Silja Pálmarsdóttir sérfræðingar hjá Listasafni Einars Jónssonar leiða gesti um valin verk á sýningunni Andi og efnisbönd. Með í för verður flautuleikarinn Hildur Arna Hrafnsdóttir sem spilar tónlist í anda verkana.

 

Leiðsögn 19:00
Á Safnanótt tekur listakollektívið Mercury Maze Studio, sem samanstendur af Owen Hindley, Katerinu Blahutova og Þorsteini Eyfjörð, á móti gestum í leiðsögn um verk sitt Andi og Efnisbönd (Synergy 2.0).

Verkið er gagnvirkt vídjó, ljós- og hljóðverk sem varpað verður á Hnitbjörg, bygginguna sem hýsir safn Einars Jónssonar. Í þessu marglaga verki geta áhorfendur rannsakað arkitektúr byggingarinnar og hljóðvist umhverfisins í gegnum umbreytingu efnis og anda.

Í beinni tengingu við verkið virkjar áhorfandinn tengsl hins líkamlega og hins andlega og ferðast um bygginguna í gegnum Digital Mapping tækni þar sem strúktúrar hússins stíga fram, við sjáum veggi snúast og stytturnar innandyra bregða á leik.

 

Fjársjóður íslenskrar myndlistar

Safnið er opið alla daga 10–17