
Krakkaklúbburinn Krummi
lau
14. nóv
14:00—16:00
Sniðug snjókorn
Náttúran er full af formum, mynstrum og litlum undrum. Við skoðum verkið Stormur á stöpli eftir Magnús Sigurðarson á 4. hæð Safnahússins og veitum athygli þeim formum og hreyfingum sem þar birtast. Innblásin af náttúrunni sem finna má í listaverkunum á safninu búum við til okkar eigin kristalla sem hægt er að taka með sér heim.
Krakkaklúbburinn Krummi stendur fyrir fjölbreyttri og skemmtilegri dagskrá í hverjum mánuði þar sem kátum krökkum er boðið að fræðast um sýningarnar í Listasafns Íslands, skapa listaverk og leika sér í nærandi umhverfi. Með Krakkaklúbbnum Krumma vill Listasafn Íslands veita börnum og fjölskyldum þeirra tækifæri til þess að njóta góðra stunda saman á safninu. Dagskráin er vönduð og öllum er velkomið að taka þátt, sér að kostnaðarlausu.
Staðsetning: Safnahúsið við Hverfisgötu

