
Sólarhringssýning á The Clock á sumarsólstöðum 2025
lau
21. júní — 22. júní
10:00—17:00
Sumarsólstöður marka síðustu sýningarhelgi á meistaraverki Christian Marclay, The Clock í Listasafni Íslands. Í tilefni þess efnum við til sólarhringssýningar á verkinu á sumarsólstöðum 21. júní. Sumarsólstöðusýningin á The Clock stendur frá kl. 10:00 á laugardeginum 21. júní til kl. 17:00 á sunnudeginum 22. júní.
Verkið er epískt, sólarhringslangt vídeóverk á einni rás með hljóði og er almennt talið eitt merkasta listaverk 21. aldarinnar. Vídeóverk Marclays er klippt saman úr mörg þúsund myndbrotum. Hvert myndbrot skírskotar til ákveðinnar tímasetningar, hvort sem er í gegnum samtal eða með vísun í tímamæli. Þau ótal augnablik sem skeytt er saman í verkinu mynda ekki heildræna frásögn. Þess í stað skapast nánast súrrealísk hughrif á meðan við fylgjumst með þeim atburðum sem eiga sér stað á þessum sólarhring.